Landvörslunámskeið 

Landvarðarnámskeið Umhverfisstofnunar verður haldið í febrúar 2021. Starfsmenn stofnunarinnar hafa endurskipulagt námskeiðið með það að markmiði að geta kennt það óháð aðstæðum í samfélaginu. Námskeiðið í ár verður allt kennt í fjarnámi.

Kristín Ósk Jónasdóttir, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun, sér um námskeiðið, undirbúning o.fl. ásamt kennurum sem koma að helstu þáttum námskeiðsins. Námskeiðið spannar 110 kennslustundir sem raðast niður á 4 vikur á tímabilinu 4. til  28. febrúar. Nemendur sem ljúka landvarðarnámskeiði ganga fyrir um landvarðastörf í þjóðgörðum og á öðrum friðlýstum svæðum. Umhverfisstofnun hefur yfirumsjón með námskeiðinu en kennarar koma jafnframt frá öðrum þjóðgörðum og víðar að.

Sjá nánar hér