Umhverfisstofnun auglýsir landvarðanámskeið 2022. Þátttaka í námskeiðinu veitir réttindi til að starfa sem landvörður. Menntaðir landverðir ganga alla jafna fyrir við ráðningar í störf.

Námskeiðið er 110 klst. og eru megin umfjöllunarefnin eftirfarandi:

• Helstu störf landvarða
• Náttúruvernd og stjórnsýsla náttúruverndarmála 
• Verðmæti friðlýstra svæða, náttúra, menning og saga
• Gestir friðlýstra svæða
• Mannleg samskipti
• Náttúrutúlkun, fræðsla á friðlýstum svæðum, bóklegt og verklegar æfingar 
• Vinnustaðir landvarða
• Öryggisfræðsla

 

Námskeiðið hefst 3. febrúar og lýkur 27. febrúar. Kennt er um helgar milli kl. 9 og 14 og á fimmtudags- og föstudagskvöldum frá kl. 17.

Námskeiðið er fjarkennt á Teams þrjár helgar en ein staðlota verður í náminu og stendur hún frá miðvikudags eftirmiðdegi og fram á sunnudag. Staðlota er vettvangsferð haldin úti á landi og er skyldumæting í hana. 

Gert er ráð fyrir töluverðri heimavinnu til viðbótar við mætingarskyldu á fyrirlestra og umræðufundi. Fyrirlestrar verða teknir upp en nemendur sem missa af umræðum vinna verkefni í stað umræðnanna.

Námskeiðsgjaldið 2022 er kr. 155.000,- og er allur kostnaður við vettvangsferðina innifalin í því verði.

Nánari upplýsingar

Á heimasíðu Umhverfisstofnunar eða hjá Kristínu Ósk Jónasdóttur, sérfræðingi í teymi náttúruverndarsvæða norður.