Landverðir - Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull

Umhverfisstofnun auglýsir eftir landvörðum í tímabundin störf í Þjóðgarðinn Snæfellsjökul. Í þjóðgarðinum fer starfsemin fram á utanverðu Snæfellsnesi, á gestastofu á Malarrifi, ströndinni við Stapa og í Búðahrauni.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • - Umsjón og eftirlit með starfssvæðum
  • - Gæta þess að ákvæðum náttúruverndarlaga og sérlaga, friðlýsingarskilmála og stjórnunar- og verndaráætlana svæða sé fylgt
  • - Upplýsa og fræða gesti um náttúru og sögu svæðanna, m.a. með fræðslugöngum
  • - Sinna viðhaldi innviða og halda við merktum gönguleiðum - Bregðast við ef slys ber að höndum

Hæfnikröfur

  • - Landvarðanámskeið eða nám sem Umhverfisstofnun telur samsvarandi er krafa
  • - Gild ökuréttindi er krafa
  • - Gild skyndihjálparréttindi er krafa. Boðið verður upp á námskeið í fyrstu hjálp í vor
  • - Góð færni í samskiptum er mikilvæg
  • - Reynsla af landvörslustörfum er kostur - Þekking á viðkomandi starfssvæði er kostur
  • - Góð kunnátta í íslensku og ensku er mikilvæg og frekari tungumálakunnátta er kostur
  • - Reynsla af útivist og náttúrutúlkun, skálavörslu, björgunarsveitarstörfum og leiðsöguréttindi eru kostir

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Verkalýðsfélag Snæfellinga hafa gert.
Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 15.02.2021

Nánari upplýsingar veitir

Jón Björnsson - jonb@umhverfisstofnun.is - 5912000
Linda Björk Hallgrímsdóttir - linda.hallgrimsdottir@umhverfisstofnun.is - 5912000

Smelltu hér til að sækja um starfið