Byggingarfulltrúi á umhverfis- og skipulagssviði á Snæfellsnesi

Sameiginlegt umhverfis- og skipulagssvið Stykkishólmsbæjar og Helgafellssveitar, Grundarfjarðarbæjar og Eyja- og Miklaholtshrepps leitar að kraftmiklum byggingarfulltrúa til að halda utan um byggingarmál og verklegar framkvæmdir í sveitarfélögunum þremur.

Byggingarfulltrúi starfar náið með skipulagsfulltrúa, sem jafnframt er sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs og næsti yfirmaður byggingarfulltrúa. Á sviðinu er lögð áhersla á vandað faglegt starf og þróun, öflugt samstarf og góða þjónustu.

Starfsaðstaða er í Ráðhúsunum í Stykkishólmi og Grundarfirði en auk þess kallar starfið á ferðir og fundi í Eyja- og Miklaholtshreppi, en um hálftíma akstur er milli þessara staða.

 

Starfssvið byggingarfulltrúa og meginhlutverk hjá samstarfssveitarfélögunum

  • Leiðir faglega þróun og stefnumótun í byggingarmálum og verklegum framkvæmdum.
  • Sinnir lögbundnu hlutverki byggingarfulltrúa skv. viðeigandi löggjöf, ber þ. á m. ábyrgð á afgreiðslufundum byggingarfulltrúa og undirbúningi byggingarmála í fagnefndum sveitarfélaganna.
  • Ber ábyrgð á daglegri starfsemi í byggingarmálum.
  • Hefur yfirumsjón með verklegum framkvæmdum í samstarfi við verkstjóra áhaldahúsa og umsjónarmenn fasteigna þ.m.t. nýframkvæmdum og viðhaldi.
  • Ber ábyrgð á gerð verk- og kostnaðaráætlana, útboðsgagna og samninga við verktaka og hönnuði og sinnir eftirliti með byggingarframkvæmdum og öðrum verklegum framkvæmdum sveitarfélaganna.
  • Ber ábyrgð á skráningu fasteigna og hefur yfirumsjón með gjaldtöku, varðveislu skjala og miðlun upplýsinga um mannvirki til íbúa.
  • Tekur við og sinnir ýmsum fyrirspurnum um byggingarmál og verklegar framkvæmdir.
  • Sinnir ýmsum öðrum tilfallandi verkefnum um byggingartengd málefni að beiðni yfirmanns.

 

Menntunar- og hæfnikröfur

  • Skilyrði:
    • Háskólamenntun á sviði byggingarmála sbr. 8. gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010.
    • Réttindi til að starfa sem byggingarfulltrúi eða getur aflað réttindanna innan 6 mánaða.
    • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og lausnamiðuð hugsun.
    • Frumkvæði, fagmennska og samviskusemi og einlægur áhugi á málefnasviðinu.
    • Góð tölvukunnátta sem nýtist í starfi.
  • Æskilegt:
    • Góð færni í íslensku og a.m.k. grunnfærni í ensku.
    • Stjórnunarhæfileikar og leiðtogafærni.
    • Þekking á lögum um mannvirki, byggingarreglugerð og skipulagslögum.
    • Þekking á góðum stjórnsýsluháttum og reynsla sem nýtist í starfi.
    • Reynsla af verkefnisstjórnun, starfsmannastjórnun og stefnumótun á málefnasviðinu.

Reiknað er með að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða skv. samkomulagi.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi fagfélags.

Umsókninni skal fylgja ferilskrá og stutt kynningarbréf þar sem fram koma hugmyndir umsækjanda um faglega hlið starfsins og öðru því sem umsækjandi telur máli skipta og varpað getur ljósi á færni til að sinna stöðu byggingarfulltrúa.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Kristín Þorleifsdóttir, sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs í netfangið kristin.thor@stykkisholmur.is og/eða síma 433 8100.

Umsóknum ásamt fylgigögnum skal skilað í ráðningakerfi Alfred.is

Umsóknarfrestur er til og með 7. febrúar.

 

 

Eyja- og Miklaholtshreppur, Grundarfjarðarbær og sameinað sveitarfélag Stykkishólms og Helgafellssveitar eru þrjú af fjórum sveitarfélögum á Snæfellsnesi og hafa hlotið EarthCheck umhverfisvottun í rúman áratug. Íbúar eru um 2300 talsins og býr meirihluti þeirra í þéttbýliskjörnunum Stykkishólmi og Grundarfirði. Á Snæfellsnesi er fjölskrúðug og falleg náttúra og gott mannlíf. Atvinnuvegir eru fjölbreyttir og samfélagið fjölskylduvænt. Alla helstu grunnþjónustu er að finna á svæðinu, m.a. leikskóla, grunnskóla, tónlistarskóla og framhaldsskóla, öflugt íþróttastarf, heilsugæslu, bókasöfn, matvöruverslanir og margt fleira. Blómleg ferðaþjónusta býður ótal skemmtilega afþreyingarmöguleika fyrir heimafólk sem gesti. Aðstaða er fyrir störf án staðsetningar, t.d. fyrir maka og svo er aðeins um 1,5-2 klst. akstur til höfuðborgarinnar!