Viltu koma og kenna með okkur?

Meðal kennslugreina er leiklist, náttúrufræði, tungumálakennsla, kennsla á mið- og  unglingastigi, stærðfræði, list- og verkgreinar.

Um tímabundna ráðningu er að ræða veturinn 21/22,  50-100% stöðuhlutfall.

 

Menntunar- og hæfniskröfur

• Leyfi til þess að nota starfsheitið kennari með áherslu á grunnskólastig
• Leikni í mannlegum samskiptum og færni í að umgangast börn og unglinga
• Skipulagshæfni, stundvísi, frumkvæði og sjálfstæði
• Faglegur metnaður
• Áhugi og hæfni til að starfa í teymisvinnu
• Góðir samskiptahæfileikar

 

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Kennarasambands Íslands og Samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga. Umsóknarfrestur er til 5. maí nk.
Umsóknum skal skilað skriflega til skólastjóra með upplýsingum um menntun, réttindi og starfsreynslu.
Nánari upplýsingar veitir Sigurður Gísli Guðjónsson skólastjóri í síma 4308550 eða á netfangið sigurdur@gfb.is eða Anna Kristín Magnúsdóttir aðstoðarskólastjóri í netfangið annak@gfb.is