Umsjónarkennara/kennara vantar í Grunnskóla Grundarfjarðar tímabundið vegna fæðingarorlofs

Ráðningartímabil er 1.mars 2022 – 31.júlí 2022

 

Grunnskóli Grundarfjarðar auglýsir eftir kennara á yngsta stig, í tímabundið starf frá 1.mars vegna fæðingarorlofs

Um er að ræða 70-80% stöðu eftir samkomulagi

Vakin er athygli á stefnu Grundarfjarðarbæjar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem bærinn er.

 

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Að annast kennslu nemenda.
  • Að standa vörð um velferð og nám barnanna.
  • Að þróa í samvinnu við samstarfsmenn framsækið og faglegt starf með áherslu á fjölbreyttar námsnálganir.

 

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfisbréf sem grunnskólakennari
  • Reynsla af kennslu í grunnskóla mjög æskileg
  • Reynsla og þekking á fjölbreyttum kennsluaðferðum
  • Löngun til að vinna í teymi
  • Hæfni í samskiptum
  • Frumleiki og sjálfstæði
  • Brennandi áhugi fyrir kennarastarfinu
  • Laun eru samkvæmt samningi Grundarfjarðarbæjar og KÍ

Nánari upplýsingar veitir Sigurður Gísli, sigurdur@gfb.is eða Anna Kristín, annak@gfb.is eða í síma: 4388550

Umsóknarfrestur er til og með  22.desember