Grundarfjarðarbær auglýsir eftir baðvörðum í Íþróttahús Grundarfjarðar til að sinna baðvörslu og þrifum. Óskað er eftir báðum kynjum.

Vinnutími er frá kl. 15:50 mánudaga til fimmtudaga og hugsanlega um helgar. Nánari upplýsingar um starfið veitir Aðalsteinn Jósepsson, forstöðumaður íþróttamannvirkja í síma 430 8564 og 861 2576 eða á netfangi steini@gfb.is

 

Launakjör eru skv. kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Dala- og Snæfellsness (SDS).

 

Umsóknarfrestur er til 26.08.16 Ráðið er í starfið frá 1. september 2016. Sótt er um starfið á vefsíðu Grundarfjarðarbæjar.

Umsóknareyðublað