Lausar stöður á Leikskólanum Sólvöllum

Leikskólinn Sólvellir óskar eftir að ráða leikskólakennara og deildarstjóra til starfa. Æskilegt er að umsækjendur geti hafi störf sem fyrst. Ef ekki fást leikskólakennarar í störfin eru leiðbeinendur ráðnir. Ráðið er í störfin fyrir skólaárið 2021-2022.

Helstu verkefni og ábyrgð við Leikskólann Sólvelli:

  • Þátttaka í þróun leikskólastarfsins í samvinnu við stjórnendur.
  • Vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara.
  • Þátttaka í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfs.
  • Mikið er lagt upp úr foreldrasamvinnu og góðum samskiptum.

 

Leikskólakennari

Starf leikskólakennara felst í þátttöku í faglegu starfi deildar. Um 100% starf er að ræða.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Kennaramenntun (leyfisbréf
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
  • Áhugi á að vinna með börnum
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Frumkvæði í starfi
  • Góð íslenskukunnátta 

 

Deildarstjóri

Starf deildarstjóra felst í skipulagningu á faglegu starfi deildar og samskiptum við foreldra. Um 100% starf er að ræða.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Kennaramenntun (leyfisbréf)
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og frumkvæði í starfi
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Góð íslenskukunnátta

 

Umsóknarfrestur er til og með 30. október 2021.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags leikskólakennara.

Nánari upplýsingar um störf leikskólakennara og deildarstjóra veitir Heiðdís Lind Kristinsdóttir, leikskólastjóri, í síma 438 6645 eða með því að senda fyrirspurnir á heiddis@gfb.is

Umsóknum um störfin skal fylgja greinargott yfirlit yfir menntun, fyrri störf, meðmælendur og annað sem umsækjandi telur máli skipta. Einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um.

Vinsamlegast athugið að Grundarfjarðarbær áskilur sér rétt til að fara fram á sakavottorð umsækjenda.

Sótt er um störf deildarstjóra og leikskólakennara á ráðningarvefnum www.alfred.is

Leikskólinn Sólvellir er þriggja deilda leikskóli með rúmlega 40 nemendur á aldrinum 1-4 ára. Skólinn starfar eftir viðurkenndum hugmyndum og kenningum í uppeldis­fræði.

Vakin er athygli á stefnu Leikskólans Sólvalla um jafnan hlut kynja í störfum.