Lausar stöður á Leikskólanum Sólvöllum

Leikskólinn Sólvellir óskar eftir að ráða kennara/leiðbeinendur til starfa.

 

Kennarar/leiðbeinendur

Starfið felst í þátttöku í faglegu starfi deildar. Um er að ræða 100% stöðu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.

 Starfssvið:

  • Starfar skv. lögum og reglugerð um leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla og stefnu sveitarfélagsins
  • Vinnur að uppeldi og menntun barna samkvæmt stefnu leikskólans sem birtist í skólanámskrá

 Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til að mega nota starfsheitið kennari
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum æskileg
  • Áhugi á að vinna með börnum
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Frumkvæði í starfi
  • Góð íslenskukunnátta í töluðu og rituðu máli 
  • Hreint sakavottorð

Nánari upplýsingar um störfin veitir Heiðdís Lind Kristinsdóttir, leikskólastjóri, í síma 438 6645 eða með því að senda fyrirspurnir á heiddis@gfb.is

Umsóknum um störfin skal fylgja greinargott yfirlit yfir menntun, fyrri störf, meðmælendur og annað sem umsækjandi telur máli skipta. Einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um.

Vinsamlegast athugið að Grundarfjarðarbær áskilur sér rétt til að fara fram á sakavottorð umsækjenda, skv. viðeigandi lögum.

Sótt er um störfin á vef leikskólans https://solvellir2.leikskolinn.is/Upplysingar/Starfsumsokn

Fáist ekki starfsmaður með leyfisbréf til kennslu koma aðrar umsóknir til greina og er þá litið til reynslu/meðmæla úr fyrri störfum.

 

Umsóknarfrestur er til og með 20. ágúst 2022.