Grundarfjarðarbær óskar eftir að ráða starfskraft í 75% stöðu til að sinna aðstoð í eldhúsi Leikskólans Sólvalla. Vinnutími er kl. 8:00-14:00.

Menntunar- og hæfniskröfur:

·         Jákvæðni, sveigjanleiki og áhugasemi

·         Þekking og reynsla af eldhússtörfum er æskileg

·         Hæfni í mannlegum samskiptum og frumkvæði í starfi

·         Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð

 

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags Dala- og Snæfellsness (SDS).

 

Nánari upplýsingar um starfið veitir Matthildur S. Guðmundsdóttir, leikskólastjóri, í síma 4386645 eða með því að senda fyrirspurnir á matthildur@gfb.is.

 

Umsóknarfrestur er til 17. ágúst nk.

Sækja um starf aðstoðarmatráðs!