Leiðbeinendur á Leikskólanum Sólvöllum
Hefur þú gaman af vinnu með börnum?

Leikskólinn Sólvellir óskar eftir að ráða leiðbeinendur til starfa. Ráðið er í störfin frá næstu áramótum eða fyrr. Ráðið er í störfin fyrir skólaárið 2021-2022.

Leitað er að jákvæðum einstaklingum sem hafa áhuga á að vinna með börnum, eru jákvæðir og eiga gott með samskipti og eru sveigjanlegir og tilbúnir að takast á við fjölbreytt, faglegt og lifandi leikskólastarf.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Vinsamlegast athugið að Grundarfjarðarbær áskilur sér rétt til að fara fram á sakavottorð umsækjenda.

Umsóknarfrestur er til og með 31. desember 2021.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Heiðdís Lind Kristinsdóttir, leikskólastjóri,
í síma 438 6645 eða í heiddis@gfb.is

Sótt er um starf leiðbeinanda á vef Grundarfjarðarbæjar, www.grundarfjordur.is

Leikskólinn Sólvellir er þriggja deilda leikskóli með rúmlega 40 nemendur á aldrinum
1-4 ára. Skólinn starfar eftir viðurkenndum hugmyndum og kenningum í uppeldis­fræði.
Vakin er athygli á stefnu Leikskólans Sólvalla um að ráða öll kyn til starfa.

Vertu með okkur í skemmtilegu og þroskandi starfi!

Sækja um