Á eftirfarandi vefslóð er unnt að skoða úthlutunarreglur Grundarfjarðarbæjar: 

http://www.grundarfjordur.is/default.asp?sid_id=11448&tId=1  Reglurnar er einnig unnt að fá útprentaðar á skrifstofu Grundarfjarðarbæjar að Grundargötu 30.

 

Helstu gögn sem þurfa að fylgja umsókn eru:

  • Staðfest afrit af skattframtali síðasta árs og launaseðlar fyrir síðustu þrjá mánuði. 
  • Vottorð um lögheimili, búsetu og fjölskyldustærð.
  • Vottorð um heilsufar/veikindi og/eða örorku ef slíkt er fyrir hendi.
  • Hafi umsækjandi keypt eða selt fasteign á árinu þarf afrit af kaupsamningi að fylgja með.
  • Vottorð um ástand núverandi húsnæðis umsækjanda ef það er á einhvern hátt heilsuspillandi eða óhentugt.

 

Stefnt er að því að íbúðin verði laus til afhendingar 1. desember n.k. eða eins fljótt og við verður komið eftir þann dag.  Umsóknarfrestur er til og með 24. nóvember 2008.  Umsóknum skal skilað til skrifstofu Grundarfjarðarbæjar að Grundargötu 30.

 

Umsókn er unnt að senda rafrænt með því að fylla út eyðublað á slóðinni:  http://www.grundarfjordur.is/default.asp?Sid_Id=29008&tId=11  Eyðublaðið finnst með því að fara inn á heimasíðu Grundarfjarðarbæjar og smella á „stjórnsýslu“ og þar vinstra megin er hnappur sem kallar fram eyðublaðið.

 

Bæjarráð Grundarfjarðarbæjar úthlutar íbúðinni eftir mat á umsóknum.

 

Nánari upplýsingar veitir bæjarstjóri á skrifstofu Grundarfjarðarbæjar eða í síma 430-8500.  Einnig má senda fyrirspurnir á tölvupóstfangið; baejarstjori@grundarfjordur.is

 

Bæjarstjóri Grundarfjarðarbæjar.