Leikskólakennari

Leikskólinn Sólvellir leitar að leikskólakennurum í deildarstjórastöður til starfa. Umsækjendur þurfa að geta hafið störf í ágúst 2021.

Hæfniskröfur

  • Leikskólakennaramenntun.
  • Önnur kennara- eða uppeldismenntun. 
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
  • Frumkvæði og metnaður til að skila góðu starfi með hópi samstarfsfólks.
  • Góð íslenskukunnátta. 

Helstu verkefni og ábyrgð við Leikskólann Sólvelli

  • Þátttaka í þróun leikskólastarfsins í samvinnu við stjórnendur.
  • Vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara og námskrá Leikskólans Sólvalla sem byggð er á aðalnámskrá skóla.
  • Þátttaka í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfs.
  • Mikið er lagt upp úr foreldrasamvinnu og góðum samskiptum.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags leikskólakennara.

Nánari upplýsingar um Leikskólann Sólvelli veitir Anna Rafnsdóttir, skólastjóri, í síma 438 6645 eða með fyrirspurn á netfangið annaraf@gfb.is

Umsóknum skal skilað á netfangið solvellir@gfb.is eða í gegnum heimasíðu skólans Sólvellir | Karellen - Leikskólakerfi (leikskolinn.is) Umsóknir má finna undir "Upplýsingar".

Umsóknarfrestur er til 20. apríl 2021.

Vakin er athygli á stefnu Leikskólans Sólvalla um jafnan hlut kynja í störfum. Vinsamlegast athugið að Grundarfjarðarbær mun óska eftir sakavottorði umsækjenda síðar í umsóknarferlinu.