Leikskólakennari óskast til starfa á Eldhömrum til afleysingar í eitt ár vegna fæðingarorlofs. Leikskóladeildin Eldhamrar er til húsa í Grunnskóla Grundarfjarðar. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf í byrjun mars.

 

Vakin er athygli á stefnu Grunnskóla Grundarfjarðar um jafnan hlut kynja í störfum.

Helstu verkefni og ábyrgð

Þróun 5 ára deildar í samstarfi við aðra stjórnendur.

Vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara.

Taka þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfs.

Mikið er lagt upp úr foreldrasamvinnu og góðum samskiptum.

Hæfniskröfur

Leikskólakennaramenntun eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg 
Áhugi á að vinna með börnum 
Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum 
Frumkvæði í starfi 
Góð íslenskukunnátta 

 

Frekari upplýsingar um starfið

Um er að ræða 100% starf. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags leikskólakennara.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigurður Gísli Guðjónsson, skólastjóri, í síma 430 8550 eða með fyrirspurn á netfangið sigurdur@gfb.is

Umsóknum skal skilað eigi síðar en 17. febrúar nk. á netfangið grundarfjordur@grundarfjordur.is eða sigurdur@gfb.is

 

Vinsamlegast athugið að Grundarfjarðarbær áskilur sér rétt til að fara fram á sakavottorð umsækjenda.