Kæru Grundfirðingar!

 

Þann 4. janúar 2017 eru liðin 40 ár síðan leikskóli var fyrst starfræktur hér í Grundarfirði.  Af því tilefni bjóðum við til afmælisveislu í Leikskólanum Sólvöllum laugardaginn 7. janúar, kl. 14:00-16:00.

Í afmælisveislunni munu nemendur skólans syngja fyrir gesti. Auk þess verður kynning á starfi leikskólans í máli og myndum, en hægt verður að sjá myndir frá tímabilinu á skjá og í myndaalbúmum.

Boðið verður upp á kaffi og afmælisköku.

Á þessum tímamótum á Matta okkar, Matthildur Guðmundsdóttir, 40 ára starfsafmæli. Hún hefur starfað við leikskólann í Grundarfirði frá upphafi.

Allir velkomnir. Hlökkum til að sjá ykkur.

Nemendur og starfsmenn Leikskólans Sólvalla