Leikskólinn Sólvellir óskar eftir að ráða aðstoð í eldhús leikskólans. Á leikskólanum er einnig eldaður hádegismatur fyrir grunnskólann. Vinnutími er kl. 8:00-16:00. Leitað er að starfsmanni sem býr yfir skipulagshæfni, snyrtimennsku og sjálfstæði í vinnubrögðum, auk hæfni í mannlegum samskiptum.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Dala- og Snæfellsness. Gerð er krafa um hreint sakarvottorð.

 

Ráðið er í starfið frá 1. janúar 2018.

 

Umsóknarfrestur er til 14. desember nk.

 

Sótt er um starfið á vefsíðu Grundarfjarðarbæjar, www.grundarfjordur.is

 

Nánari upplýsingar um starfið veita Anna Rafnsdóttir, leikskólastjóri, annaraf@gfb.isog Ingibjörg Þórarinsdóttir, aðstoðar­leikskólastjóri, í ingibjorg@gfb.is.