Að undanförnu höfum við á leikskólanum verið að vinna með vináttu og hvað það þýðir að vera vinir.  Það hefur t.d. verið skrifað niður hvað börnin telja að vinátta þýði og hvað vinir gera.  Mjög gaman að vinna að þessu verkefni.  Á morgun er dagur leikskólans og að því tilefni förum við í skrúðgöngu ásamt Eldhömrum.  Við höfum líka verið með lestrarátak þar sem við hvetjum foreldra til að lesa fyrir  börnin sín.

Lestrarátakinu lýkur á morgun.