Leikskólinn Sólvellir hefur tekið í notkun nýtt samskiptakerfi sem sniðið er að þörfum og starfsemi leikskóla. Leikskólakerfið Karellen einfaldar starfsfólki leikskóla starfið og eykur möguleika á samskiptum við foreldra.

Ennfremur er heimasíða innifalin í Karellen og var hún opnuð í vikunni.

Slóðin er enn sem fyrr: solvellir.grundarfjordur.is en heimasíðan er ný.

Ennfremur má kynna sér Karellen kerfið á slóðinni, mykarellen.is