Langar þig til að leika, dansa, syngja eða bara vera með?  Í samstarfi við Grundfjarðarbæ verður námskeið á vegum Lóu Oddsdóttur þrisvar í viku dagana 2. til 27 júlí fyrir börn á aldrinum 6 til 14 ára.  Öll börn á þessum aldri eru velkomin og  strákar sérstaklega.  Námskeiðsgjald er 5.000 kr. fyrir hvert barn.  Atriðin verða sýnd á bæjarhátíðinni "Á góðri stund".

 

Einnig verður haldin sýning þegar líða fer á námskeiðið.  Börnin verða þjálfuð í söng, dans og leiklist.  Markmiðið er að allir fái að njóta sín og efla sjálfstraustið.

 

Ef einhver getur ekki verið með allan tímann, þá hafið samband og við finnum lausn á því.  Skráning og upplýsingar um námskeiðið er í síma 898-7564 og 438-6771 og ennþá er hægt að skrá sig. Verum sem flest með.  Lóa Odds og co.