Bæjarstjóri leitar eftir samstarfi við 2-3 íbúa í hverju hverfi, bláa, græna, gula og rauða hverfinu. Leitað er að einstaklingum sem eru áhugasamir um sitt nánasta umhverfi og eru tilbúnir að vera til ráðgjafar og sem tengiliðir við sín hverfi.

 

Það er staðreynd að hver íbúi þekkir best sitt ,,heimahverfi”, nánasta umhverfi heimilis eða vinnustaðar. Íbúinn hefur án efa rekið augun í eitt og annað sem betur mætti fara eða bæta mætti, snyrta eða fegra, auk þess sem hann veit hvar hefur tekist vel til og af hverju má læra.

 

Sumarið er hálfnað, enn er tími til að taka til hendinni og fegra umhverfið. Bæjarstarfsmenn, sláttugengi og vinnuskóli, reyna að hafa sig alla við í umhirðu gróðurs og almennri snyrtingu bæjarins og íbúar dunda í görðum sínum og dytta að húsum.

Leitað er að íbúum sem hafa skoðun á því hvað megi betur fara í nánasta umhverfi þeirra, varðandi umhirðu almennt, ástand gróðurs, garða, gatna og lóða. Hvaða ábendingar hafa íbúar til bæjarstarfsmanna, hvaða góðu ráð geta nágrannar veitt hver öðrum og hvernig getum við í sameiningu gert Grundarfjörð (sveit og bæ) að snyrtilegasta sveitarfélagi á Íslandi?

 

Óskað er eftir 2-3 íbúum úr hverju hverfi - sveitin fylgir með (t.d. er útsveit í rauða hverfi).

UMHVERFISRÁÐHERRAR!  Hafið samband við undirritaða sem fyrst!

 

Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri

bjorg@grundarfjordur.is

s. 430 8500