Leikhópurinn Lotta sýnir Litlu gulu hænuna, glænýtt íslenskt leikrit með söngvum á Grundarfirði þann 8. júní klukkan 18:00. Þettaer níunda sumarið sem Leikhópurinn Lotta setur upp útisýningu en síðastliðin sumur hefur hópurinn leikið sér við Hróa hött, Gilitrutt, Stígvélaða köttinn, Mjallhvíti og dvergana sjö, Hans klaufa, Rauðhettu, Galdrakarlinn í Oz og Dýrin í Hálsaskógi. Frumsýnint verður í Elliðaárdalnum í Reykjavík miðvikudaginn 27. maí en í framhaldinu mun hópurinn ferðast með sýninguna og heimsækja yfir 50 staði víðsvegar um landið.

Höfundur Litlu gulu hænunnar er Anna Bergljót Thorarensen. Þetta er fimmta leikritið sem hún skrifar fyrir hópinn en hún hefur verið meðlimur í Leikhópnum Lottu frá stofnun hans árið 2006. Ný tónlist hefur einnig verið samin fyrir verkið. Textarnir eru allir eftir Baldur Ragnarsson en lögin samdi Baldur ásamt þeim Rósu Ásgeirsdóttur og Birni Thorarensen sem einnig eru í hópnum.

Söguna um Litlu gulu hænuna þekkja flestir en ævintýrið hefur verið notað fleiri áratugi til að kenna börnum mikilvægi þess að allir hjálpist að. Lotta hefur ákveðið að krydda þessa hefðbundnu sögu örlítið upp og bæta við heilu ævintýri í viðbót. Hver segir líka að litla gula hænan sé ekki einmitt sama hæna og verpir gulleggjum fyrir risann í ævintýrinu um Jóa og baunagrasið. Alls eru sex leikarar í sýningunni sem skipta á milli sín níu hlutverkum. Þá er flutt lifandi tónlist, söngur og dans og því nóg um að vera. Þessu er síðan öllu haldið saman af leikstjóranum og er hann enginn annar en Vignir Rafn Valþórsson.

Miðaverð á sýninguna er 1.900 krónur og ekki þarf að panta miða fyrirfram heldur er alveg nóg að mæta bara á staðinn. Gott er að klæða sig eftir veðri þar sem sýnt er utandyra. Þá mælir Lotta með því að foreldrar taki myndavélina með þar sem áhorfendur fá að hitta persónurnar úr leikritinu eftir sýningu. Öllum þykir jú gaman að eiga mynd af sér með uppáhalds vini sínum úr Ævintýraskóginum.