Nú geta fasteignareigendur í Framsveit tengst ljósleiðaranum og er hér að finna leiðbeiningar um hvernig það getur gengið fyrir sig:

 

  • Notandi pantar þjónustu frá því fjarskiptafyrirtæki (þjónustuveitu) sem hann kýs að versla við.

            Á vef Mílu, www.mila.is, er hægt að sjá hverjir þjónustuveitendur     eru

            með því að skrifa inn nafn staðar og skoða hvernig tenging er möguleg fyrir viðkomand stað. 

 

  • Þjónustuveita pantar ljósleiðarasamband frá Mílu f.h. bæjarins.
  • Ljósleiðaratengingin er afgreidd og þjónustuveitanda er tilkynnt um það.
  • Starfsmaður eða annar fulltrúi þjónustuveitanda heimsækir notandann og setur upp nauðsynlegan endabúnað í húsakynnum notandans. Í sumum tilfellum getur þjónustuveitandi sent notanda búnaðinn, notandinn tengir hann þá sjálfur eða fær aðstoð fagmanna.           
  • Þjónustan er tilbúin. 

 

Almennt gildir að ljósleiðarakerfi sem hafa fengið ríkisstyrk skulu vera opin öllum þjónustuveitendum og fulls jafnræðis skal gætt. Samkeppni milli þjónustuveitenda er ætlað að tryggja að notendur njóti alltaf hagstæðustu kjara.