Á aðventudegi Kvenfélagsins Gleym-mér ei þann 1. desember 2019 voru kynnt úrslit úr ljósmyndasamkeppni Grundarfjarðar árið 2019. Þátttaka í samkeppninni var vonum framar og voru sendar inn tæplega 70 ljósmyndir. Dómnefnd gaf sér nægan tíma til að fara yfir þær myndir sem bárust.  

 

 

 

Í dómnefnd voru, úr menningarnefnd bæjarins, Eygló Bára Jónsdóttir formaður og Sigurborg Knarran Ólafsdóttir, ásamt alþýðulistamanninum Liston, Lúðvík Karlssyni.  Í 1. og 2. sæti var Oliver Degener, og í 3. sæti var Salbjörg Nóadóttir. Við þökkum öllum sem sendu inn myndir og óskum vinningshöfum enn og aftur innilega til hamingju.