- Þjónusta
- Stjórnsýsla
- Mannlíf
Ljósmyndasamkeppni 2025
Ljósmyndasamkeppni Grundarfjarðarbæjar verður haldin í sextánda sinn í ár. Það er menningarnefnd sem heldur utan um keppnina og hefur ákveðið að þema keppninnar í ár verði “Dýralíf”.
Samkvæmt reglum keppninnar verða myndirnar að vera teknar innan sveitarfélagsmarka á tímabilinu 1. desember 2024 til 1. nóvember 2025 og má hver þátttakandi senda inn að hámarki tvær myndir. Myndir sem sendar eru inn í keppnina mega ekki hafa verið birtar á neinum miðlum fyrr en að verðlaunaafhendingu lokinni.
Verðlaun verða veitt fyrir þrjár bestu myndirnar. Fyrstu verðlaun eru 50.000 kr., önnur verðlaun 30.000 kr. og þriðju verðlaun 20.000 kr.
Tilgangur keppninnar er að ýta undir áhuga á ljósmyndun meðal bæjarbúa, virkja þátttöku þeirra og fá nýja sýn inn í bæjarfélagið og samfélagið. Einnig er bærinn að koma sér upp góðu safni af myndum úr og af sveitarfélaginu til notkunar við kynningarstarf og annað sem viðkemur starfsemi bæjarins.
Enn sem áður hvetur Grundarfjarðarbær bæjarbúa til þátttöku. Það er alls ekki nauðsynlegt að eiga dýrar myndavélar til að taka þátt heldur eru það hugmyndaflug, staðsetning, birta, myndefni og tímasetning sem ráða því hvernig til tekst þegar smellt er af. Menningarnefnd fer yfir myndirnar og finnur verðuga sigurvegara fyrir verðlaunasæti án þess að vita nöfn þeirra sem sendu þær inn.
Reglur keppninnar:
Með mikilli tilhlökkun með að sjá ykkar sjónarhorn á dýralífi í Grundarfirði,
Menningarnefnd