Ljósmynd: Aðalsteinn Valur Grétarsson
Ljósmynd: Aðalsteinn Valur Grétarsson

Enn er tími til að taka þátt í ljósmyndasamkeppni Grundarfjarðarbæjar 2026

 

Enn er opið fyrir myndir í ljósmyndasamkeppni Grundarfjarðarbæjar 2026 og er skilafrestur til miðnættis mánudaginn 16. nóvember.

Keppnin er nú haldin í sautjánda sinn og er þemað í ár „menning“. Myndirnar þurfa að vera teknar innan sveitarfélagsmarka Grundarfjarðarbæjar á tímabilinu 1. desember 2025 til 16. nóvember 2026. Hver þátttakandi má senda inn að hámarki tvær myndir.

Verðlaun eru veitt fyrir þrjár áhugaverðustu myndirnar. Fyrstu verðlaun eru 50.000 kr., önnur verðlaun 30.000 kr. og þriðju verðlaun 20.000 kr. 

Það þarf ekki dýran myndavélabúnað til að taka þátt. Hugmyndaflug, staðsetning, birta, myndefni og tímasetning geta skipt mestu máli þegar smellt er af. 

Myndunum skal skila í .jpg-sniði á netfangið menning@grundarfjordur.is og merkja póstinn „Ljósmyndasamkeppni Grundarfjarðarbæjar 2026“. Nafn og símanúmer höfundar þarf einnig að fylgja. 

Bæjarbúar eru hvattir til að líta í myndasafnið í símanum eða grípa tækifærið næstu daga og fanga sitt sjónarhorn á menningu í Grundarfirði.

Reglur keppninnar:

  1. Skil á myndum fara fram með því að senda myndirnar á netfangið menning@grundarfjordur.is merktar „Ljósmyndasamkeppni Grundarfjarðarbæjar 2026”. Mjög mikilvægt er að pósturinn sé merktur með þessum upplýsingum ásamt nafni og símanúmeri höfundar.
  2. Skilafrestur á myndum er til miðnættis mánudaginn 16. nóvember 2026.
  3. Ekki má birta myndir sem skilað hefur verið inn, hvorki á netinu, sýningum né í fjölmiðlum fyrr en að lokinni verðlaunaafhendingu.
  4. Myndirnar verða að vera teknar innan sveitarfélagsmarka á tímabilinu 1. desember 2025 - 16. nóvember 2026.
  5. Hver keppandi getur aðeins lent í einu verðlaunasæti.
  6. Grundarfjarðarbær áskilur sér rétt til að nota myndirnar á vefsíðum sínum, endurgjaldslaust.
  7. Grundarfjarðarbær áskilur sér rétt til að birta og prenta myndirnar, hafa til sýnis, hvort sem er í húsnæði bæjarins eða annars staðar, endurgjaldslaust.
  8. Skila verður myndum í .jpg formati.
  9. Hver þátttakandi má skila inn að hámarki 2 myndum.
  10. Með því að senda inn myndir í keppnina samþykkir þátttakandi reglur hennar.

 

Við hlökkum mikið til að sjá ykkar sjónarhorn á menningu í Grundarfirði.
Menningarnefnd