Aðalsteinn Valur Grétarsson sigraði í ljósmyndasamkeppninni í fyrra með þessari glæsilegu mynd.
Aðalsteinn Valur Grétarsson sigraði í ljósmyndasamkeppninni í fyrra með þessari glæsilegu mynd.

Ljósmyndasamkeppni Grundarfjarðarbæjar 2026

 

Ljósmyndasamkeppni Grundarfjarðarbæjar verður haldin í sautjánda sinn í ár. Það er menningarnefnd sem heldur utan um keppnina og er þemað í ár „menning“.

Samkvæmt reglum keppninnar verða myndirnar að vera teknar innan sveitarfélagsmarka á tímabilinu 1. desember 2025 til 16. nóvember 2026 og má hver þátttakandi senda inn að hámarki tvær myndir. Myndir sem sendar eru inn í keppnina mega ekki hafa verið birtar á neinum miðlum fyrr en að verðlaunaafhendingu lokinni.

Verðlaun verða veitt fyrir þrjár áhugaverðustu myndirnar. Fyrstu verðlaun eru 50.000 kr., önnur verðlaun 30.000 kr. og þriðju verðlaun 20.000 kr.

Tilgangur keppninnar er að ýta undir áhuga á ljósmyndun meðal bæjarbúa, virkja þátttöku þeirra og fá nýja sýn á bæjarfélagið og samfélagið. Einnig er bærinn að koma sér upp góðu safni af myndum úr og af sveitarfélaginu til notkunar við kynningarstarf og annað sem viðkemur starfsemi bæjarins.

Enn sem áður hvetur Grundarfjarðarbær bæjarbúa til þátttöku. Það er alls ekki nauðsynlegt að eiga dýrar myndavélar til að taka þátt heldur eru það hugmyndaflug, staðsetning, birta, myndefni og tímasetning sem ráða því hvernig til tekst þegar smellt er af.

 

Reglur keppninnar:

  1. Skil á myndum fara fram með því að senda myndirnar á netfangið menning@grundarfjordur.is merktar „Ljósmyndasamkeppni Grundarfjarðar 2026”. Mjög mikilvægt er að pósturinn sé merktur með þessum upplýsingum ásamt nafni og símanúmeri höfundar.
  2. Skilafrestur á myndum er til miðnættis mánudaginn 16. nóvember 2026.
  3. Ekki má birta myndir sem skilað hefur verið inn, hvorki á netinu, sýningum né í fjölmiðlum fyrr en að lokinni verðlaunaafhendingu.
  4. Myndirnar verða að vera teknar innan sveitarfélagsmarka á tímabilinu 1. desember 2025 - 16. nóvember 2026.
  5. Hver keppandi getur aðeins lent í einu verðlaunasæti. 
  6. Grundarfjarðarbær áskilur sér rétt til að nota myndirnar á vefsíðum sínum, endurgjaldslaust.
  7. Grundarfjarðarbær áskilur sér rétt til að birta og prenta myndirnar, hafa til sýnis, hvort sem er í húsnæði bæjarins eða annars staðar, endurgjaldslaust.
  8. Skila verður myndum í .jpg formati.
  9. Hver þátttakandi má skila inn að hámarki 2 myndum. 
  10. Með því að senda inn myndir í keppnina samþykkir þátttakandi reglur hennar.

 

Með mikilli tilhlökkun að sjá ykkar sjónarhorn á menningu í Grundarfirði.
Menningarnefnd