Grundarfjarðarbær efnir til ljósmyndasamkeppni líkt og síðasta sumar. Sú keppni tókst með ágætum og í framhaldi af henni var haldin glæsileg ljósmyndasýning á Rökkurdögum í október.

Þema samkeppninnar í ár er Fólkið í bænum. Myndirnar verða að vera teknar innan sveitarfélagsmarka og á tímabilinu apríl til september. Samkeppnin stendur til 30. september 2012 og má hver þátttakandi senda inn að hámarki fimm myndir.

 

Verðlaun verða veitt fyrir þrjár bestu myndirnar. Fyrstu verðlaun eru 50.000 kr., önnur verðlaun 30.000 kr. og þriðju verðlaun 20.000 kr.

 

Tilgangur keppninnar er sá að Grundarfjarðarbær komi sér upp góðu safni mynda úr sveitarfélaginu til notkunar við kynningarstarf og annað sem viðkemur starfsemi bæjarins.

Reglur keppninnar

1.       Skil á myndum fer fram með því að senda myndirnar á netfangið ljosmynd2012@gmail.com

2.       Skilafrestur á myndum er til miðnættis sunnudaginn 30. september 2012.

3.       Ekki má birta myndir sem skilað hefur verið inn, hvorki á netinu, sýningum né fjölmiðlum fyrr en að lokinni verðlaunaafhendingu (á Rökkurdögum).

4.       Myndirnar verða að vera teknar innan sveitarfélagsmarka á tímabilinu apríl til september.

5.       Grundarfjarðarbær áskilur sér rétt til að nota myndirnar á vefsíðum sínum endurgjaldslaust.

6.       Grundarfjarðarbær áskilur sér rétt til að prenta myndirnar og hafa til sýnis, hvort sem er í húsnæði bæjarins eða annars staðar, endurgjaldslaust.

7.       Grundarfjarðarbær áskilur sér rétt til að birta myndirnar endurgjaldslaust.

8.       Skila verður myndum í .jpg formati.

9.       Skila má fleiri en einni mynd en að hámarki fimm myndum frá hverjum þátttakanda.

10.   Með því að senda inn mynd/ir í keppnina er þátttakandi að samþykkja reglur hennar.