Nú þegar sumarið er gengið í garð er ástæða til að minna á Ljósmyndasamkeppni Grundarfjarðarbæjar sem er undir formerkjunum líf og leikur þetta árið. Vegleg verðlaun eru í boði fyrir efstu þrjú sætin í keppninni; 50.000 kr fyrir fyrstu verðlaun, 30.000 kr fyrir önnur verðlaun og 20.000 kr fyrir þau þriðju.

 Myndirnar verða að vera teknar innan sveitarfélagsmarka á tímabilinu janúar til nóvember 2016 og má hver þátttakandi senda inn að hámarki fimm myndir. 

 

 

Tilgangur keppninnar er að Grundarfjarðarbær komi sér upp góðu safni mynda úr sveitarfélaginu til notkunar við kynningarstarf og annað sem viðkemur starfsemi bæjarins. Jafnframt að ýta undir áhugaljósmyndun meðal bæjarbúa.

Grundarfjarðarbær hvetur bæjarbúa til þátttöku. Ekki er nauðsynlegt að eiga dýrar myndavélar til að taka þátt heldur er það frekar hugmyndaflug, staðsetning, birta, myndefni og tímasetning sem ráða því hvernig til tekst þegar smellt er af.

 

 

Reglur keppninnar:

1.   Skil á myndum fara fram með því að senda myndirnar á

      netfangið sigridurh@grundarfjordur.is

2.   Skilafrestur á myndum er til miðnættis fimmtudaginn 10. Nóvember 2016.

3.   Ekki má birta myndir sem skilað hefur verið inn, hvorki á netinu,

      sýningum né í fjölmiðlum fyrr en að lokinni verðlaunaafhendingu.

4.   Myndirnar verða að vera teknar innan sveitarfélagsmarka á tímabilinu

      janúar til nóvember 2016.

5.   Grundarfjarðarbær áskilur sér rétt til að nota myndirnar á vefsíðum sínum

      endurgjaldslaust.

6.   Grundarfjarðarbær áskilur sér rétt til að prenta myndirnar og hafa til

      sýnis, hvort sem er í húsnæði bæjarins eða annars staðar,

      endurgjaldslaust.

7.   Grundarfjarðarbær áskilur sér rétt til að birta myndirnar endurgjaldslaust.

8.   Skila verður myndum í .jpg formati.

9.   Skila má fleiri en einni mynd en að hámarki fimm myndum frá hverjum

       þátttakanda.

10.  Með því að senda inn mynd/ir í keppnina samþykkir þátttakandi

       reglur hennar.