Vinningsmynd 2019, Oliver Degener.
Vinningsmynd 2019, Oliver Degener.

Í ellefta sinn blæs Grundarfjarðarbær til hinnar árlegu Ljósmyndasamkeppni bæjarins.

Menningarnefnd hefur ákveðið að þema keppninnar í ár verði Vetur í Grundarfirði 2020.

Samkvæmt reglum keppninnar verða myndirnar að vera teknar innan sveitarfélagsmarka á tímabilinu 1. desember 2019 til 1. nóvember 2020 og má hver þátttakandi senda inn að hámarki fimm myndir. 

Verðlaun verða veitt fyrir þrjár bestu myndirnar. Fyrstu verðlaun eru 50.000 kr., önnur verðlaun 30.000 kr. og þriðju verðlaun 20.000 kr.

Tilgangur keppninnar er að Grundarfjarðarbær komi sé upp góðu safni mynda úr sveitarfélaginu til notkunar við kynningarstarf og annað sem viðkemur starfsemi bæjarins. Jafnframt að ýta undir áhugaljósmyndum meðal bæjarbúa.

Grundarfjarðarbær hvetur bæjarbúa til þáttöku. Ekki er nauðsynlegt að eiga dýrar myndavélar til að taka þátt heldur er það hugmyndarflug, staðsetning, birta, myndefni og tímasetning sem ráða því hvernig til tekst þegar smellt er af. 

Reglur keppninnar:

  1. Skil á myndum fara fram með því að senda myndirnar á netfangið grundarfjordur@grundarfjordur.is merktar "Ljósmyndasamkeppni Grundarfjarðar 2020".

  2. Skilafrestur á myndum er til miðnættis sunnudagsins 1. nóvember 2020 - ATH lengdur skilafrestur á myndum til miðnættis sunnudaginn 15.nóvember.

  3. EKKI má birta myndir sem skilað hefur verið inn, hvorki á netinu, sýningum né í fjölmiðlum fyrr en að lokinni verðlaunaafhendingu.

  4. Myndirnar verða að vera teknar innan sveitarfélagsmarka á tímabilinu desember 2019  - nóvember 2020.

  5. Grundarfjarðarbær áskilur sér rétt til að nota myndirnar á vefsíðum sínum, endurgjaldslaust.

  6. Grundarfjarðarbær áskilur sér rétt til að prenta myndirnar og hafa til sýnis, hvort sem er í húsnæði bæjarins eða annars staðar, endurgjaldslaust.

  7. Grundarfjarðarbær áskilur sér rétt til að birta myndirnar endurgjaldslaust.

  8. Skila verður myndum í .jpg formati.

  9. Skila má fleiri en einni mynd en að hámarki fimm myndum frá hverjum þátttakanda.

  10. Með því að senda inn mynd/ir í keppnina samþykkir þáttakandi reglur hennar.

 

Með hækkandi sól, gleði og jákvæðni í hjarta, þá hvetjum við ykkur eindregið til þess að fara út og njóta fegurðar í ykkar nágrenni.

Menningarnefnd