Mynd: Þorsteinn Hjaltason, Vinningsmynd ljósmyndasamkeppni Grundarfjarðarbæjar 2021
Mynd: Þorsteinn Hjaltason, Vinningsmynd ljósmyndasamkeppni Grundarfjarðarbæjar 2021

Í þrettánda sinn efnir menningarnefnd Grundarfjarðarbæjar til ljósmyndasamkeppni bæjarins og er þema ársins í ár “Lægðin”.

Samkvæmt reglum keppninnar verða myndirnar að vera teknar innan sveitarfélagsmarka á tímabilinu 1. desember 2021 til 18. nóvember 2022 og má hver þátttakandi senda inn að hámarki fimm myndir.

Verðlaun verða veitt fyrir þrjár bestu myndirnar. Fyrstu verðlaun eru 50.000 kr., önnur verðlaun 30.000 kr. og þriðju verðlaun 20.000 kr.

Tilgangur keppninar er að ýta undir áhuga á ljósmyndun meðal bæjarbúa, virkja þátttöku þeirra og fá nýja sýn á bæjarfélagið og samfélagið. Einnig er bærinn að koma sér upp góðu safni af myndum úr og af sveitarfélaginu til notkunar við kynningarstarf og annað sem viðkemur starfsemi bæjarins.

Enn sem áður hvetur Grundarfjarðarbær bæjarbúa til þátttöku. Það er alls ekki nauðsynlegt að eiga dýrar myndavélar til að taka þátt heldur eru það hugmyndaflug, staðsetning, birta, myndefni og tímasetning sem ráða því hvernig til tekst þegar smellt er af.

Reglur keppninnar:

  • Skil á myndum fara fram með því að senda myndirnar á netfangið grundarfjordur@grundarfjordur.is merktar "Ljósmyndasamkeppni Grundarfjarðar 2022".

  • Skilafrestur á myndum er til miðnættis föstudagsins 18. nóvember 2022.

  • EKKI má birta myndir sem skilað hefur verið inn, hvorki á netinu, sýningum né í fjölmiðlum fyrr en að lokinni verðlaunaafhendingu.

  • Myndirnar verða að vera teknar innan sveitarfélagsmarka á tímabilinu desember 2021 - nóvember 2022.

  • Grundarfjarðarbær áskilur sér rétt til að nota myndirnar á vefsíðum sínum, endurgjaldslaust.

  • Grundarfjarðarbær áskilur sér rétt til að prenta myndirnar og hafa til sýnis, hvort sem er í húsnæði bæjarins eða annars staðar, endurgjaldslaust.

  • Grundarfjarðarbær áskilur sér rétt til að birta myndirnar endurgjaldslaust.

  • Skila verður myndum í .jpg formati.

  • Skila má fleiri en einni mynd en að hámarki fimm myndum frá hverjum þátttakanda.

  • Með því að senda inn mynd/ir í keppnina samþykkir þátttakandi reglur hennar.

 

Við hvetjum ykkur eindregið til þess að fara út og fylgjast með lægðinni, hvernig fangar þú hana? 

Menningarnefnd