Mynd: Stefan Wrabetz, vinningsmynd ljósmyndasamkeppni Grundarfjarðarbæjar 2022
Mynd: Stefan Wrabetz, vinningsmynd ljósmyndasamkeppni Grundarfjarðarbæjar 2022

Ljósmyndasamkeppni Grundarfjarðarbæjar verður haldin í fjórtánda sinn í ár. Það er menningarnefnd sem heldur utan um keppnina og hefur ákveðið að þema keppninnar í ár verði “Viðburðir og mannlíf”.

Unnið hefur verið að því að skanna inn myndir Bærings Cecilssonar sem einmitt tók myndir af helstu viðburðum og mannlífi í bænum hér á árum áður. Myndir hans hafa verið birtar vikulega undir liðnum Sjöa vikunnar og þar má sjá hinar ýmsu myndir af samkomum, mannlífi, heimsóknum og svo mætti lengi telja. Þemað þykir líka viðeigandi þar sem að í ár eru hundrað ár liðin frá fæðingu Bærings.

Samkvæmt reglum keppninnar verða myndirnar að vera teknar innan sveitarfélagsmarka á tímabilinu 1. desember 2022 til 18. nóvember 2023 og má hver þátttakandi senda inn að hámarki fimm myndir. Myndir sem sendar eru inn í keppnina mega ekki hafa verið birtar á neinum miðlum fyrr en að verðlaunaafhendingu lokinni.

Verðlaun verða veitt fyrir þrjár áhugaverðustu myndirnar. Fyrstu verðlaun eru 50.000 kr., önnur verðlaun 30.000 kr. og þriðju verðlaun 20.000 kr.

Tilgangur keppninar er að ýta undir áhuga á ljósmyndun meðal bæjarbúa, virkja þátttöku þeirra og fá nýja sýn á bæjarfélagið og samfélagið. Einnig er bærinn að koma sér upp góðu safni af myndum úr og af sveitarfélaginu til notkunar við kynningarstarf og annað sem viðkemur starfsemi bæjarins. Hver veit nema þín mynd prýði forsíðu Forbes í framtíðinni.

Enn sem áður hvetur Grundarfjarðarbær bæjarbúa til þátttöku. Það er alls ekki nauðsynlegt að eiga dýrar myndavélar til að taka þátt heldur eru það hugmyndaflug, staðsetning, birta, myndefni og tímasetning sem ráða því hvernig til tekst þegar smellt er af.

Reglur keppninnar:

  • Skil á myndum fara fram með því að senda myndirnar á netfangið grundarfjordur@grundarfjordur.is merktar "Ljósmyndasamkeppni Grundarfjarðar 2023".
  • Skilafrestur á myndum er til miðnættis föstudagsins 17. nóvember 2023.
  • EKKI má birta myndir sem skilað hefur verið inn, hvorki á netinu, sýningum né í fjölmiðlum fyrr en að lokinni verðlaunaafhendingu.
  • Myndirnar verða að vera teknar innan sveitarfélagsmarka á tímabilinu desember 2022 - nóvember 2023.
  • Grundarfjarðarbær áskilur sér rétt til að nota myndirnar á vefsíðum sínum, endurgjaldslaust.
  • Grundarfjarðarbær áskilur sér rétt til að prenta myndirnar og hafa til sýnis, hvort sem er í húsnæði bæjarins eða annars staðar, endurgjaldslaust.
  • Grundarfjarðarbær áskilur sér rétt til að birta myndirnar endurgjaldslaust.
  • Skila verður myndum í .jpg formati.
  • Skila má fleiri en einni mynd en að hámarki fimm myndum frá hverjum þátttakanda.
  • Með því að senda inn mynd/ir í keppnina samþykkir þátttakandi reglur hennar.

Með mikilli tilhlökkun að sjá ykkar sjónarhorn á mannlífi og viðburðum í Grundarfirði,

Menningarnefnd