Á vegum Rökkurdaga er að ljúka ljósmyndasamkeppninni Mannlíf og umhverfi Grundarfjarðarbæjar.  Öllum er heimil þátttaka hægt er að senda inn bæði nýjar og gamlar ljósmyndir af mannlífi og/eða umhverfi Grundarfjarðarbæjar. Myndirnar verða svo til sýnis í Hrannarbúðinni á Rökkurdögum. 

 

Þeir sem vilja taka þátt í keppninni eru beðnir um að senda myndirnar í tölvupósti á póstfangið rosa@tsc.is, með lýsingunni: Ljósmyndir.
Í tölvupóstinum skal koma fram nafn sendanda, heimilisfang og símanúmer og að sjálfsögðu ljósmyndin. Ef ljósmyndirnar eru ekki stafrænar skal senda þær á Skrifstofu Grundarfjarðarbæjar Grundargötu 30, 350 Grundarfjarðar og merkja umslagið ljósmyndir. Í umslaginu skulu koma fram ofangreindar upplýsingum um ljósmyndara.

 
Hrannarbúðin gefur stórglæsileg verðlaun

Skilafrestur hefur verið framlengdur til 22 okt. fyrir starfrænar myndir en rennur út í dag 20. okt fyrir útprentaðar myndir