Lóa - nýsköpunarstyrkir fyrir landsbyggðina

Ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra auglýsir eftir umsóknum um Lóu - nýsköpunarstyrki fyrir landsbyggðina.  

Hlutverk styrkjanna, sem nú verða veittir í fyrsta sinn, er að styðja við nýsköpun, eflingu atvinnulífs og verðmætasköpun sem byggir á hugviti, þekkingu og nýrri færni, á forsendum svæðanna sjálfra. Lóa styður við nýsköpunarstefnu og er liður í breytingum á opinberu stuðningsumhverfi nýsköpunar vegna fyrirhugaðar niðurlagningar Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.

ATHUGIÐ - Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur og er til 22. mars 2021.
Umsóknum er skilað rafrænt. Opið er fyrir umsóknir (frá 11. febrúar) á eyðublaðavef Stjórnarráðsins

Nánar um Lóu