Mikil gosmóða hefur legið yfir Grundarfirði síðustu daga og mælir Umhverfis- og orkustofnun með því að takmarka útiveru og sérstaklega áreynslu utandyra. Loftgæðamælir sem staðsettur er í Hvalfirði mælir "óholla" mengun og annar mælir sem staðsettur er á Ísafirði mælir mengun "óholla fyrir viðkvæma". Grundarfjarðarbær mælir með að fólk hafi varann á og hver og einn meti sínar aðstæður.

Þessar leiðbeiningar má finna á www.loftgaedi.is:

 

Við þennan styrk brennisteinsdíoxíðs geta viðkvæmir einstaklingar farið að hósta og finna fyrir ertingu í augum, koki og nefi. Heilbrigðir einstaklingar geta fundið einkenni frá öndunarfærum og ertingu í augum, nefi og koki. Gosmóða getur orsakað slen, höfuðverk, ertingu í augum og hálsi auk flensueinkenna. 

Þeir sem eru viðkvæmir fyrir í öndunarfærum, og börn ættu að forðast útivist og sérstaklega skal takmarka áreynslu.  Þeir sem eru síður viðkvæmir geta einnig fundið fyrir einkennum og ættu einnig að takmarka áreynslu. Mælt er með því að starfsfólk í útivinnu takmarki vinnu sem felur í sér áreynslu. Ekki er mælt með því að láta ung börn sofa úti í vagni við þessar aðstæður.

Almennar ráðleggingar varðandi gasmengun eru eftirfarandi:

  • Lungna- og hjartasjúklingar hafi sín lyf tiltæk
  • Andið sem mest með nefi og forðast líkamlega áreynslu utandyra í mikill mengun því það dregur úr þeim styrk sem kemst niður í lungu.
  • Dvöl innanhúss með lokaða glugga og slökkt á loftræstingu veitir verulega vörn fyrir menguninni.
  • Athugið að rykgrímur veita enga vörn gegn gasmengun

Ráðstafanir til varnar SO2 og annarri gosmengun innandyra 

  • Lokaðu gluggum og minnkaðu umgengni um útidyr. 
  • Hækkaðu hitastigið í húsinu. 
  • Loftaðu út um leið og loftgæði batna utandyra.

Auk ofangreindra upplýsinga má finna ráðleggingar vegna heilsufarslegra áhrifa af völdum loftmengunar á vef landlæknis. Mælingar á loftgæðum eru aðgengilegar á loftgæðavef Umhverfis- og orkustofnunar, nánari leiðbeiningar um viðbrögð við styrk SO2 má fá með því að smella á tengil í vinstra horni síðunnar. 

Spár um gasmengun má sjá á vef Veðurstofunnar.