Af mbl.is 13/4/2011

Baldur Orri Rafnsson, tónlistarkennari í Grundarfirði, betur þekktur sem „Baldur bongó“, ætlar ekki að láta sér nægja að mæta einn á þriðja úrslitaleik Vals og Fram um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik kvenna í Vodafone-höllina í kvöld.

Með honum verða nærri 30 nemendur hans í tónlistarskólanum í Grundarfirði á aldrinum 12 til 16 ára. Þeir ætla að halda uppi fjöri fyrir leikinn og á meðan á honum stendur en Valur getur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í kvöld með sigri.

„Það verða nærri 30 blásarar og trommarar með mér í för og því útlit fyrir mikið stuð í Vodafonehöllinni,“ segir Baldur sem er fyrir löngu þekktur fyrir áslátt sinn á bongótrommur á kappleikjum í handbolta og fótbolta hér á landi, aðallega á leikjum Vals enda hefur hann lengi verið gallharður stuðningsmaður Hlíðarendafélagsins og reynir að mæta á eins marga leiki og hann getur þótt hann hafi búið í Grundarfirði um nokkurra ára skeið.