Nú stendur yfir vinna við fjárhagsáætlun fyrir árið 2010.  Þetta verkefni er, sökum aðstæðna í efnahagslífinu, vandasamara en oft hefur verið.  Skrifstofa Grundarfjarðarbæjar hvetur fólk til að senda inn hugmyndir, ábendingar og tillögur um sparnað og/eða um leiðir til þess að bæta starfsemi sveitarfélagsins.  Allar hugmyndir eru vel þegnar og verða ræddar í þessari vinnu. 

Þeir aðilar sem vilja koma að ábendingum, tillögum og/eða hugleiðingum okkar sveitarfélagi til heilla fyrir næsta fjárhagsár og framtíðina yfirleitt, eru hvattir til að senda þær til skrifstofustjóra á tölvupóstfangið eythor@grundarfjordur.is

Nauðsynlegt er að nafn sendanda fylgi.  Skilafrestur er til föstudagsins 27. nóvember.