Eins og margir hafa sjálfsagt veitt athygli eru komin tæki og tól inn í bæinn vegna malbikunar gatna og fleiri svæða á næstu dögum.  Ekki verður hjá því komist að íbúar verði varir við þessar framkvæmdir og e.t.v. þarf að þrengja lítillega að umferð tímabundið á einstaka stað á meðan framkvæmdir standa yfir.  Takmarkið er að gera gatnakerfið sem best úr garði og yfirbragð bæjarins gott.  Vonast er til þess að íbúar sýni framkvæmdunum skilning og þolinmæði, þetta mun ekki standa yfir í langan tíma.  Athugið að enn er tækifæri til þess að koma á framfæri ósk um malbikun innkeyrsla eða bílastæða, en það verður aðeins í 1 - 2 daga í viðbót.