Þann 17.apríl næstkomandi verður haldið málþing um málefni innflytjenda á Vesturlandi.

 

Málþingið verður haldið í félagsheimilinu Klifi, Ólafsvík og mun hefjast kl.12:30 með léttum veitingum og er áætlað að því ljúki kl.15:30.

 

Leitast verður við að svara spurningunni: Hvernig hafa sveitarfélög, atvinnurekendur og íbúar á Vesturlandi tekið á móti innflytjendum ?

 

Markmiðið með málþinginu er m.a. að varpa ljósi á eftirfarandi spurningar:

        Höfum við tekið vel á móti innflytjendum hér á Vesturlandi?

        Hvaða upplýsingar eru í boði fyrir innflytjendur?

        Hvaða upplýsingar vantar?

        Hver er stefna stjórnvalda varðandi innflytjendur?

        Hver er upplifun innflytjenda þegar þeir flytja á Vesturland?

        Hver eru kjara- og atvinnuréttindi innflytjenda?

Nánari dagskrá verður birt á www.ssv.is

Fjölmargir áhugaverðir fyrirlesarar, fundarstjóri verður Gísli Einarsson fréttamaður.

 

Hvetjum alla til að taka þennan dag frá, enda koma málefni innflytjenda okkur öllum við.

 

Skráning fer fram í síma 437 1318 eða á netfangið kristin@ssv.is