Þann 21.mars næstkomandi verður haldið málþing um málefni innflytjenda á Vesturlandi.

 

Málþingið verður haldið í félagsheimilinu Klifi, Ólafsvík og mun hefjast kl. 10:00 og áætlað er að því ljúki kl. 14:00

 

Leitast verður við að svara spurningunni: Hvernig hafa sveitarfélög, atvinnurekendur og íbúar á Vesturlandi tekið á móti innflytjendum ?

 

Markmiðið með málþinginu er m.a. að varpa ljósi á eftirfarandi spurningar:

 

§        Höfum við tekið vel á móti innflytjendum hér á Vesturlandi?

§        Hvaða upplýsingar eru í boði fyrir innflytjendur?

§        Hvaða upplýsingar vantar?

§        Hver er stefna stjórnvalda varðandi innflytjendur?

§        Hver er upplifun innflytjenda þegar þeir flytja á Vesturland?

§        Hver eru kjara- og atvinnuréttindi innflytjenda?

 

Hér má sjá dagskrá fundarins

Fjölmargir áhugaverðir fyrirlesarar.

 

Hvetjum alla til að taka þennan dag frá, enda koma málefni innflytjenda okkur öllum við.

 

Skráning fer fram í síma 437 1318 eða á netfangið kristin@ssv.is