Við hátíðlega athöfn í Utanríkissráðuneytinu  staðfestu Össur Skarphéðinsson ferðamálaráðherra og forsvarsmenn markaðsstofa samninga við sjö markaðsstofur landshlutanna sem annast munu markaðsmál ferðaþjónustu innanlands.

Vonast er til að samningar þessi leggi grundvöll að tryggum rekstri þeirra á næstu árum. Samstarfið byggir á sérstakri fjárveitingu af fjáraukalögum og á þeirri forsendu að sveitarfélög og fyrirtæki komi einnig á afgerandi hátt að rekstrinum á móti ríkinu.

 

 

Með nýju skipulagi í markaðsmálum ferðaþjónustunnar og almennri landkynningu er verið að tryggja betri nýtingu fjármuna og ná auknum árangri með markvissu samstarfi þeirra sem koma að markaðs- og ímyndarmálum.

Að sögn Jónasar Guðmundssonar forsvarsmanns Markaðsstofu Vesturlands er þetta gleðilegur áfangi fyrir Vesturland því að með stofnun stofunnar opnast leið til samstarfs við ráðuneyti og Ferðamálastofu sem tryggir þá ákveðið fjármagn til svæðisins sem ekki hefur tekist áður "Á þessu ári fáum við mjög ásættanleg framlög frá ríkinu þrátt fyrir efnahagsaðstæður og þessi framlög gera okkur kleift að opna og reka tvær heimasíður fyrir Vesturland svo og að ráðast í útgáfu á veglegum þjónustubæklingi auk smærri verkefna. Við erum því afskaplega glöð og stolt i dag" sagði Jónas Guðmundsson.