Matarsendingar – hlutastarf

 

Grundarfjarðarbær óskar eftir að ráða starfsmann til að keyra út mat í hádeginu virka daga, cirka til loka maí. Starfsmaðurinn mun hafa bíl til umráða.

Um er að ræða flutning á skólamat frá FSN í Grunnskóla Grundarfjarðar um kl. 11:30 (skv. skóladagatali grunnskóla) og matarsendingar frá Fellaskjóli til nokkurra heimila eldri borgara.

Getur hentað tveimur aðilum að skipta á milli sín.

 

Launakjör eru skv. kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

 

Sótt er um á  vef Grundarfjarðarbæjar, hér.

  Sækja um starf