Matráður óskast til starfa

Leikskólinn Sólvellir óskar eftir að ráða matráð í 75% starf. Um framtíðarstarf er að ræða. Starfið felst í yfirumsjón með eldhúsi. Matráður sér um matseld á heitum mat og bakstur, skipuleggur matseðla og annast innkaup á matvörum, bæði fyrir leik- og grunnskólann. Matráður hefur umsjón með matseld hádegismatar fyrir um 190–200 manns, en eldað er fyrir grunnskólann og Eldhamra í leikskólanum, ásamt morgunmat og miðdegishressingu fyrir um 65 manns. Leikskólinn Sólvellir er þátttakandi í verkefninu heilsueflandi leikskóli. Matráður mun koma að vinnu við að móta stefnu fyrir leikskólann á sviði næringar, ásamt stjórnendum.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Menntun og reynsla sem nýtist í starfi er æskileg
  • Skipulagshæfni, snyrtimennska og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og frumkvæði í starfi

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Starfsmannafélag Dala- og Snæfellsness. Gerð er krafa um hreint sakarvottorð.

Ráðið er í starfið sem fyrst.

Umsóknarfrestur er til 22. september nk.

Sótt er um starfið á vefsíðu Leikskólans Sólvalla, http://solvellir2.leikskolinn.is

Nánari upplýsingar um starfið veita Anna Rafnsdóttir, leikskólastjóri og Ingibjörg Þórarinsdóttir, aðstoðar­leikskólastjóri, í síma 438 6645 eða með því að senda fyrirspurnir á netfangið annaraf@gfb.is.