Grundarfjarðarbær auglýsir lausa til umsóknar nýja stöðu menningar- og markaðsfulltrúa. Um er að ræða 100% starf. Starfið er laust nú þegar.

 

Leitað er eftir öflugum og metnaðarfullum einstaklingi sem er reiðubúinn að þróa nýtt starf á traustum grunni.

Helstu verkefni:

·         Rekstrarstjórn menningarhúss Grundarfjarðar.

·         Kynningar- og markaðsmál.

·         Umsjón með menningarviðburðum og vinabæjarsamskiptum.

Menntunar- og hæfniskröfur:

·         Háskólamenntun eða sambærilegt nám sem nýtist í starfi.

·         Metnaður, hugmyndaauðgi, skipulagshæfni og leiðtogahæfileikar.

·         Hæfni í mannlegum samskiptum, góðir samstarfs- og samskiptahæfileikar.

·         Hæfni til að setja fram mál í ræðu og riti á íslensku og ensku . Frekari tungumálakunnátta er mikill kostur.

Upplýsingar um starfið veitir Björn Steinar Pálmason, bæjarstjóri – bjorn@grundarfjordur.is eða í síma 4308500. Umsókn á að fylgja greinargóð starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Umsóknir sendist í ofangreint netfang fyrir 25. apríl nk.

Grundarfjarðarbær