Mánudaginn 17. september n.k. kl. 14-15 verður Elísabet Haraldsdóttir, menningarfulltrúi Vesturlands á bæjarskrifstofunni til að kynna mögulegar styrkveitingar Menningarráðs og huga að verðugum verkefnum næsta árs eins og segir í tilkynningu.

Elísabet býður öllum sem áhuga hafa að koma á skrifstofu Grundarfjarðarbæjar á fyrrgreindum tíma og ræða málin.