Menntamálaráðherra mun kynna nýja menntastefnu á fundi í Borgarnesi fimmtudaginn 16. október. Fundurinn hefst klukkan 20:00 og er opinn borgarafundur. Fundurinn verður sendur út með fjarfundarbúnaði til íbúa á Snæfellsnesi í Framhaldsskóla Snæfellinga í Grundarfirði. Frekari upplýsingar má finna í fréttatilkynningu með því að velja meira. 

Fréttatilkynning

 

Menntamálaráðherra kynnir nýja menntastefnu í Borgarnesi

Menntamálaráðherra mun á næstu vikum fara um landið og kynna nýja menntastefnu og ný lög um þrjú skólastig og menntun kennara. Fundaherferðin hófst með velheppnuðu Menntaþingi í Háskólabíói 12. september sem yfir 800 manns sóttu, hlýddu á kynningar á nýrri stefnu og tóku þátt í líflegum umræðum í málstofum.

Næsti fundur verður haldinn í Menntaskólanum í Borgarnesi fimmtudaginn 16. október frá kl. 20-22. Á fundinum mun Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, kynna nýja menntastefnu og Arnór Guðmundsson, skrifstofustjóri í  menntamálaráðuneyti, kynnir nýja menntalöggjöf nánar. Að erindum loknum verða pallborðsumræður með málshefjendum ásamt Guðna Olgeirssyni og Sölva Sveinssyni, sérfræðingum í menntamálaráðuneyti.

Fundurinn er öllum opinn og vill menntamálaráðuneytið hvetja skólafólk, foreldra, nemendur og annað áhugafólk um skólamál til að mæta og ræða nýja menntalöggjöf sem býður upp á mörg og spennandi tækifæri fyrir íslenskt skólakerfi.

Í nýjum lögum um leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla og um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda eru margar veigamiklar breytingar sem endurspegla þá stefnu að nemandinn sé í brennidepli í skólastarfinu, faglegt starf kennara verði eflt og áhrif og ábyrgð á námi færð til þeirra sem málið varðar mest.  Dæmi um breytingar eru eftirfarandi:

·         Áhrif foreldra á starf í leikskólum aukin með stofnun foreldraráða.

·         Skólastjórar í leik- og grunnskólum bera nú aukna ábyrgð á samhæfingu sérfræðiþjónustu og gert er ráð fyrir að þjónustan fari í auknum mæli fram innan veggja í skólans.

·         Samræmd próf í 10. bekk grunnskóla verða felld niður í núverandi mynd en í staðinn tekin upp könnunarpróf í íslensku, ensku og stærðfræði að hausti í 10. bekk.

·         Veitt er heimild til samreksturs, leikskóla, grunnskóla og tónlistarskóla

·         Framhaldsskólar fá aukið sjálfstæði til að móta námsframboð og gera tillögur um nýjar námsbrautir. Ekki er lengur miðað við fjórar bóknámsbrautir og starfsnám og bóknám verður jafngilt til stúdentsprófs.

·         Menntun kennara verður stórefld og gerð er krafa um að leik-, grunn- og framhaldsskólakennarar hafi lokið meistaragráðu.

 

Nánari upplýsingar um nýja menntastefnu og dagskrá haustsins eru á www.nymenntastefna.is.