Skólaskip franska sjóhersins gólettan L’Etoile lagðist að bryggju í Grundarfjarðarhöfn um miðjan dag í gær. Auk 30 manna áhafnar flutti skútan með sér steinkross sem reistur var með viðhöfn á Grundarkampi þar sem hinn forni Grundarfjarðarkaupstaður stóð.

Krossinn, sem er gjöf frá Paimpol vinabæ Grundarfjarðar, er minnisvarði um franska sjómenn sem létust á Íslandsmiðum. Stendur hann þar sem franskir sjómenn reistu sér kirkju á sínum tíma, en hún var rifin er þeir héldu af landi brott.

Franskir sjóliðar við minnisvarðann

Sr. Elinborg Sturludóttir sóknarprestur stjórnaði helgistund sem fram fór bæði á frönsku og íslensku en franskir sjóliðar mynduðu heiðursvörð. Eftir helgistundina var rósum varpað í sjóinn til að heiðra minningu um látna franska sjómenn. Fjölmargir Grundfirðingar sem og franskir skútusjómenn sem þátt taka í keppninni Skippers d’Islande voru viðstaddir athöfnina á Grundarkampi.

Frétt af www.mbl.is.