Minnt er á að frestur til að skila inn myndum í Ljósmyndasamkeppni Grundarfjarðarbæjar árið 2015 rennur út þann 30. september. Myndefni keppninnar í ár eru Gestir og gangandi. Vinsamlegast sendið myndir á netfangið grundarfjordur@grundarfjordur.is.

Þessi mynd eftir Sverri Karlsson hafnaði í öðru sæti keppninnar árið 2014.

Verðlaun verða veitt fyrir þrjár bestu myndirnar. Fyrstu verðlaun eru kr. 50.000, önnur verðlaun kr. 30.000 og þriðju verðlaun kr. 20.000.

Grundarfjarðarbær hvetur bæjarbúa til þátttöku. Ekki þarf dýrar vélar til að taka þátt heldur spilar hér hugmyndaflug, staðsetning, birta, myndefni og tímasetningar stærra hlutverk.

Reglur keppninnar eru eftirfarandi:

  1. Skil á myndum fara fram með því að senda myndirnar á netfangið grundarfjordur@grundarfjordur.is
  2. Skilafrestur á myndum er til miðnættis miðvikudaginn 30. september 2015.
  3. Ekki má birta myndir sem skilað hefur verið inn, hvorki á netinu, sýningum né í fjölmiðlum fyrr en að lokinni verðlaunaafhendingu.
  4. Myndirnar verða að vera teknar innan sveitarfélagsmarka á tímabilinu janúar til september 2015.
  5. Grundarfjarðarbær áskilur sér rétt til að nota myndirnar á vefsíðum sínum endurgjaldslaust.
  6. Grundarfjörður áskilur sér rétt til að prenta myndirnar og hafa til sýnis, hvort sem er í húsnæði bæjarins eða annars staðar, endurgjaldslaust.
  7. Skila verður inn myndum í .jpg formati.
  8. Skila má inn fleiri en einni mynd en að hámarki fimm myndum frá hverjum þátttakanda.
  9. Með því að senda inn mynd/ir í keppnina er þátttakandi að samþykkja reglur hennar.