Sögumiðstöðin, Grundarfirði
Sögumiðstöðin, Grundarfirði

Grundarfjarðarbær í samstarfi við Félag eldri borgara og Grundarfjarðardeild RKÍ bjóða nú í  
MOLAKAFFI AÐ MORGNI á miðvikudögum frá klukkan 9 – 11.  

Hittumst, spjöllum, spáum og spekúlerum.  

Tilvalið fyrir eldri íbúana og þau sem hafa sótt Vinahúsið - en annars eru öll hjartanlega velkomin!    

Eftir hádegi í Sögumiðstöð er síðan opið hús alla mánudaga til fimmtudaga frá klukkan 13 – 16 á opnunartíma bókasafns/upplýsingamiðstöðvar.

Í haust fer svo af stað félagsstarf ýmissa félagasamtaka, á nýjum stað, í Sögumiðstöðinni.  Nánar um það síðar.  

Sjáumst í kaffispjalli nk. miðvikudagsmorgun! 

Grundarfjarðarbær