Vel hefur verið mætt í morgunkaffi bæjarfulltrúa og bæjarstjóra. Mynd tekin í síðasta morgunkaffi la…
Vel hefur verið mætt í morgunkaffi bæjarfulltrúa og bæjarstjóra. Mynd tekin í síðasta morgunkaffi laugardaginn 14. nóvember.

 

Morgunkaffi bæjarfulltrúa og bæjarstjóra vel sótt

 

Góð aðsókn hefur verið að fyrstu tveimur fundunum í Sögumiðstöðinni þar sem bæjarstjóri og bæjarfulltrúar hafa boðið íbúum til morgunkaffis. Þar hafa skapast góðar umræður og komið fram gagnlegar ábendingar og sjónarmið um málefni samfélagsins.

Morgunkaffið verður framvegis haldið einn laugardag í mánuði. Fundirnir eru óformlegir, opnir öllum og gefa íbúum og kjörnum fulltrúum tækifæri til að ræða saman það sem hæst ber hverju sinni, koma á framfæri hugmyndum og ábendingum og ræða það sem betur má fara.

Næsta morgunkaffi verður í Sögumiðstöðinni laugardaginn 12. desember kl. 10:30.

Birkir Jón Jónsson bæjarstjóri í morgunkaffi í Sögumiðstöðinni

Líflegar umræður í morgunkaffi í október.