Gestir skemmtiferðaskipsins MS Albatros voru boðnir velkomnir til Grundarfjarðar af nýstárlegri móttökunefnd Grundarfjarðarhafnar. Móttökunefndin er í raun fjöllistahópur undir stjórn Sigurborgar Kr. Hannesdóttur. Hópinn skipa Guðmundur Haraldsson, Heiðdís Björk Jónsdóttir, Helga Ingvarsdóttir, Ingólfur Örn Kristjánsson, Marínó Ingi Eyþórsson og Sigurborg Knarran Ólafsdóttir. Gestirnir voru mjög ánægðir með sýninguna sem innihélt dans, söng, leiðsöguferðir og önnur atriði. Hópurinn mun starfa í sumar þegar hingað koma skemmtiferðaskip.

 

Hér eru fleiri myndir.